Haldið verður suður á boginn á eftir þar sem við BÍ/Bolungarvík karlar og konur erum að fara etja kappi við Markaregn og Létti hjá körlunum og Hauka hjá kvensunum. Er orðinn vel spenntur fyrir þessum leikjum, fyrstu leikir BÍ/Bolungarvík hjá okkur strákunum þetta sumarið og annar leikurinn hjá stelpunum. Síðasta helgi var frekar slöpp þar sem bæði lið töpuðu frekar illa, en ég stend fastur á því að við eigum eftir að sýna okkar eigið andlit. Bæði liðin eiga nóg inni til að sanna.
Ég er sjálfur að stíga upp úr meiðslunum sem ég er búinn að kljást við síðustu 2 mánuðina. Fékk að vera með á æfingu í gær, það var snilld, get ekki beðið eftir að fá að spila aftur.
Snillingarnir í Muse eru að gefa út nýjan disk 3.júlí, Black holes and Revalations. Fyrsta smáskífan er að koma út á næstu dögum og heitir lagið Supermassive Blackhole. Það er komið vídeo af laginu, þið getið séð það hérna http://www.museandamuse.com/. Held að þetta verði svakaleg plata ef dæma má hana af fyrstu smáskífunni. Allar plöturnar þeirra hafa verið snilld en geta þeir gert betri plötu en Absolution??
Hérna eru lögin á plötunni:
01. Take A Bow
02. Starlight
03. Supermassive Black Hole
04. Map Of The Problematique
05. A Soldier's Poem
06. Invincible
07. Assassin
08. Exo Politics
09. City Of Delusion
10. Hoodoo
11. Knights Of Cydonia
Sameinuð stöndum við – sundruð föllum við!






