Húrra?

thank-you-for-smoking-poster-0.jpg

Þann 1. júní verður loksins sett á reykingabann á veitinga og skemmtistaði. Í allan þennan tíma hafa reyklausir þurft að anda að sér tópaksreyk, sem er svo sjálfsagt að fólk verður móðgað ef maður skyldi biðja það um að reykja úti. Hvert sinn sem maður fer út á kaffihús, horfir á boltann á sportbar eða fer út að skemmta sér, þá er víst inn í reikningnum að maður komi angandi af sígarettureyk tilbaka. Þessu oftast sturta og fötin í hreinsun eða þá allt sængursettið daginn eftir.

Ég þarf því miður að byrja vinnudaginn minn í lokuðu rými án loftræstingar og glugga, á meðan fjórir vinnufélagar mínir svala níkótínþörfunni. Auðvitað get ég beðið úti, en þá veit ég bara ekki hvað ég er að fara að gera þann vinnudag.

En ég fór að velta einu fyrir mér um daginn. Þegar ég var að keyra í vinnuna einn daginn, stoppa ég á rauðu ljósi. Ég lít til hliðar og sé mann reykja sígarettu í bílnum sínum og það eru 2 börn aftur í. Bílrúðunum er að sjálfsögðu ekki rennt niður.

Það er staðreynd að reykingar inn á heimilum í dag eru miklu fátíðari en áður. Fólkið sem var ekki sagt í gamla daga að reykingar væru óhollar, vita betur nú. Þeir vita líka að fólk fer að benda fingurnum á það ef það kemst að því að það reykir heima fyrir og þá sérstaklega ef börn eru til staðar.

Þess vegna hafa reykingamenn vel valdna staði til að reykja þar sem enginn fordæmir það, kaffihús og skemmtistaðir(ásamt veitingastöðum á ,,merktum svæðum”).

 En þá spyr maður sig.. hvert fara reykingamenn ef það má ekki reykja á þessum stöðum? Iðja sem margir hafa stundað allt sitt líf og daglegur partur líf þess er að koma saman með kunningjum inná kaffihúsum og reykja saman?

Það geta ekkert allir bara hætt að reykja þann 1. júní. Félagi minn í vinnunni er að reyna að hætta að reykja og hann sagðist aldrei áður haft eins sterka löngun á að drepa einhvern.

Hvað verður um kaffi og sígó saman eftir vinnu?

Það sem ég er hræddastur um er það að fólk færir iðju sína í auknum mæli inn á heimilin. Það er ekkert hægt að vera með hitting í heimahúsi og allir standa úti með kaffi í annarri og sígarettu í hinni. Ég er aðalega að hugsa um ákveðinn aldurshóp sem hefur ekki aldur til að sitjast inn á kaffihús eða stunda skemmtistaðina. Ég er á því að óbeinu reykingarnar færast frá þeim hópi sem sækir á þessa staði og jafnast frekar út í alla aldurshópa. Börn hafa nefnilega ekki val inn á heimilunum eins og við sem sækjum þessa staði þar sem reykt er á að hreinlega bara sleppa því.

 Þau sleppa auðvitað sem er í reyklausum fjölskyldum en ég þekki svakalega margar fjölskyldur af hinni gerðinni.

Húrra?

4 svör to “Húrra?”

  1. Edith segir:

    MINN BARA BYRJAÐUR AÐ BLOGGA! Nú líst mér sko á þig…ekki heyrt múkk í þér svo mánuðum skiptir ;)

    Góð pæling Tommi, góð pæling. Mín skoðun er nú samt sú að reykingar drepa og það er ferleg lykt af þeim…Allir sem hafa vit í kollinum hætta þessum óþverra. En svo er líka fólk sem hefur ekki vit í kollinum, og það má bara vera úti ;) Þeir koma allavega ekki inn á mitt heimili.

    MISS YOU!

    Þín elskulega systir

  2. Tómas Emil segir:

    Já þetta eru alltof langar pásur..
    Ég er alls ekki að mótmæla banninu, en ef afleiðing þess sé að kaffihúsastemning byggist upp á heimilum fólks, þá eru væntanlega fleiri að fá reykinn ofan í sig sem hafa hingað til komist hjá því.

    Sakna þín líka litla mús

  3. Sigþór segir:

    Neihh, hvur djöfullinn… Ég hélt að þessi síða þín hefði bara látið lífið… ;)
    En ég vildi bara skilja eftir nokkur spor hérna…
    Og ég er alveg sammála þessari pælingu hjá þér, ef þetta verður bannað á kaffihúsum og pöbbum, þá er rosalega hætt við að þess menning færist í heimahús, sem er slæmt… En meiningin með þessu banni er samt sem áður góð… Þyrfti eiginlega bara að vera framkvæma þetta betur..
    Þ.e.a.s. t.d. að ef einhverjir staðir myndu hafa bara sér herbergi þar sem reykingarnar væru leyfðar… En hafa það samt sem áður ekki þannig að reykjarfýlan og loftið myndi læða sér inn á reyklausa svæðið…

    Æji vá, ég er bara kominn í rugl með þessa pælingu…! Drífðu þig vestur illinn þinn… Ég sakna þín líka :)
    Og já, til hamingju með að United sé 3 besta lið í evrópu ;)

  4. Steinunn segir:

    Nauhh vá blogg? Til hamingju! ;)

    Já þetta með reykingarbannið, ég er mjög fegin að þetta færist út af þessum stöðum og að maður angi ekki eins og ég veit ekki hvað þegar maður kemur heim en þetta eru samt góðar pælingar. Veit ekki alveg hvernig er hægt að útfæra þetta svo allir hagnist :S
    Held samt að margir þeirra sem muni reykja ofan í börnin sín geri það nú þegar því miður :/

    En well hafðu það gott og vertu duglegur að blogga, gaman að lesa ;)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.