Stand up for the champions!

maí 6, 2007

epl_scholesmanu_20061022.jpg

Who’s finishing where – Paul Wilson’s 2006-2007 Premiership final table:

1 Liverpool Will be going all out for the title this season, to judge by Wednesday’s Champions League quali?er, and they can get under Chelsea’s skin.

2 Chelsea Will be putting everything into Europe this year. We hope.

3 Arsenal Tomas Rosicky, the new Dennis Bergkamp.

4 Spurs New, improved lasagne recipe.

5 Manchester United Where are the goals going to come from? LOL!

6 Everton Andy Johnson a big success.

7 Blackburn Mark Hughes puts down a marker for possible Old Trafford vacancy.

8 Bolton Steady, but no surprises.

9 Newcastle Happy to be mid-table.

10 Aston Villa On the up, maybe a Carling Cup ?nal in a season or two.

11 Middlesbrough Gareth Southgate may struggle, but still a well-run club with good players.

12 West Ham Can’t possibly match last season’s success. Can they?

13 Portsmouth Wild stab in the dark. Could ? nish anywhere.

14 Charlton Iain Dowie ?nds going tough at ? rst but ? nishes strongly. Just so people notice there’s a new manager.

15 Wigan Due a relegation struggle.

16 Manchester City Due a relegation scare.

17 Sheffield United Neil Warnock is a good manager and he has not waited all this time to go straight back down.

18 Watford Down in last-day drama.

19 Fulham Chris Coleman has his work cut out.

20 Reading The new Sunderland.

Eintóm hamingja

Húrra?

maí 1, 2007

thank-you-for-smoking-poster-0.jpg

Þann 1. júní verður loksins sett á reykingabann á veitinga og skemmtistaði. Í allan þennan tíma hafa reyklausir þurft að anda að sér tópaksreyk, sem er svo sjálfsagt að fólk verður móðgað ef maður skyldi biðja það um að reykja úti. Hvert sinn sem maður fer út á kaffihús, horfir á boltann á sportbar eða fer út að skemmta sér, þá er víst inn í reikningnum að maður komi angandi af sígarettureyk tilbaka. Þessu oftast sturta og fötin í hreinsun eða þá allt sængursettið daginn eftir.

Ég þarf því miður að byrja vinnudaginn minn í lokuðu rými án loftræstingar og glugga, á meðan fjórir vinnufélagar mínir svala níkótínþörfunni. Auðvitað get ég beðið úti, en þá veit ég bara ekki hvað ég er að fara að gera þann vinnudag.

En ég fór að velta einu fyrir mér um daginn. Þegar ég var að keyra í vinnuna einn daginn, stoppa ég á rauðu ljósi. Ég lít til hliðar og sé mann reykja sígarettu í bílnum sínum og það eru 2 börn aftur í. Bílrúðunum er að sjálfsögðu ekki rennt niður.

Það er staðreynd að reykingar inn á heimilum í dag eru miklu fátíðari en áður. Fólkið sem var ekki sagt í gamla daga að reykingar væru óhollar, vita betur nú. Þeir vita líka að fólk fer að benda fingurnum á það ef það kemst að því að það reykir heima fyrir og þá sérstaklega ef börn eru til staðar.

Þess vegna hafa reykingamenn vel valdna staði til að reykja þar sem enginn fordæmir það, kaffihús og skemmtistaðir(ásamt veitingastöðum á ,,merktum svæðum”).

 En þá spyr maður sig.. hvert fara reykingamenn ef það má ekki reykja á þessum stöðum? Iðja sem margir hafa stundað allt sitt líf og daglegur partur líf þess er að koma saman með kunningjum inná kaffihúsum og reykja saman?

Það geta ekkert allir bara hætt að reykja þann 1. júní. Félagi minn í vinnunni er að reyna að hætta að reykja og hann sagðist aldrei áður haft eins sterka löngun á að drepa einhvern.

Hvað verður um kaffi og sígó saman eftir vinnu?

Það sem ég er hræddastur um er það að fólk færir iðju sína í auknum mæli inn á heimilin. Það er ekkert hægt að vera með hitting í heimahúsi og allir standa úti með kaffi í annarri og sígarettu í hinni. Ég er aðalega að hugsa um ákveðinn aldurshóp sem hefur ekki aldur til að sitjast inn á kaffihús eða stunda skemmtistaðina. Ég er á því að óbeinu reykingarnar færast frá þeim hópi sem sækir á þessa staði og jafnast frekar út í alla aldurshópa. Börn hafa nefnilega ekki val inn á heimilunum eins og við sem sækjum þessa staði þar sem reykt er á að hreinlega bara sleppa því.

 Þau sleppa auðvitað sem er í reyklausum fjölskyldum en ég þekki svakalega margar fjölskyldur af hinni gerðinni.

Húrra?

Eymdin hans Erlings

nóvember 25, 2006

Eymd er eitthvað sem sem hendir okkur öll. Lífið er ekki alltaf dans á rósum.

Erlingur Fannar er ávallt mjög kátur en þegar eymdin heltekur hann næ ég furðulega oft að taka mynd af því. Því er einn þráður á viku tileinkaður eymdinni hans Erlings.

eymd-1.jpg

Allt lék í lyndi. Nýbúnir í háskarakstri upp í Naustahvilft. En ekki er allt sem sýnist, þarna lá honum eitthvað á hjarta.

Sigurrós

október 14, 2006

Ég fer í fríið

september 6, 2006

http://villimadur.bloggar.is

Ease your mind

ágúst 15, 2006

http://www.simnet.is/muzak/muzak/Ease%20your%20mind.mp3

Gabriel Heinze

júní 16, 2006

gambar_berita33a.jpg

Ég er ekki frá því að þessi maður hafi verið langbesti leikmaður Argentínu áðan þegar þeir lögðu Serbana með 6 mörkum gegn engu. Legend

Ástarfleyið, special Gummi Guðjóns edition

júní 15, 2006

Gummi Guðjóns var rétt í þessu að koma af stefnumóti við stigatöfluna hérna úti. Guðmundur var staðráðinn að skora í þessum rómantísku fundum en stefnumótið varð að stórslysi. Guðmundur var að sýna stigatöflunni hvernig maður tæki flugskalla og vildi svo hrikalega til að hann lenti á horninu á stigatöflunni. Ég hélt um tíma að Gummi hafði breytt sér í Þrölla 3000, en raunin var að Gummi var kominn með gat á hausinn.

5 spor og rauðar strípur í nokkra daga, kúl

Eina með remolaði takk fyrir

júní 8, 2006

Kom kannski ekki á óvart að það fyrsta sem ég eldaði mér í nýju íbúðinni voru SS pulsur. En skemmtilega vildi það til að ég náði að klúðra fyrstu máltíðinni allsvakalega. Þið mynduð e.t.v hugsa:,, Zomg, getur hann einu sinni ekki eldað sér pulsur, Looser!''. En þegar maður kveikir á vitlausri hellu, snýr svo hitatakkanum í 360° svo að hann lendi aftur á 0 án þess að fatta það, þá er þetta alltsaman mögulegt. Það leið hálftími þangað til að ég fattaði þetta og ég byrjaði að bölva kölskanum sem er víst á meðal okkar eftir 06.06.06. Vandaði mig svo mikið að stilla helluna á 3 og skellti mér svo í sófann og beið eftir að það byrjaði að sjóða. Aðrar 30 mín liðu og vatnið var rétt svo byrjað að hitna. Tók svo eftir því að ég hafði sett allt of mikið vatn í pottinn og gleymt að setja lokið á. 30 mín seinna þá voru pulsurnar tilbúnar. Þetta allt tók einn og hálfan tíma. Hvað gerist þegar ég reyni að elda mér nautalundir eða kannski villiönd?

HM að byrja á morgunn. Vona bara að ég fái ekki gyllinæð á að sitja svona mikið. Danmörk er ekki með í ár, svo að ég ætla að halda með Argentínu. Gabriel Heinze  að koma tilbaka sem verður gaman því hann er hetjan mín.

Mitt heimili er þitt heimili

maí 30, 2006

 fonz.jpg 

 Fonzo er ánægður með þetta

Sundstræti 41 mun hýsa mig næsta árið eða svo. Fékk lyklana í hendurnar áðan, mjög góð tilfinning. Ætla að flytja inn á helginni, vantar að þrífa hana betur og ætla að sletta smá málningu hér og þar. Er að fá gefins sófasett á morgun, þannig að þá er ekki mikið sem ég þarf að bæta við svo þetta verði gott heimili. Ekki vera feimin við að kíkja í kaffi og kexkökur.

4 spurning kvikmyndatilvitnannakeppninar!  Ekki gúggla

Roy O'Bannon: I don't know Karate but I do know crazy, and I will use it.

Erum við ekki að grínast?? Markvörður skorar úr útsparki í vináttuleik Kólumbíu og Póllands. Hvar er Jerzy Dudek?? http://www.youtube.com/watch?v=KJfW3hrzAz8


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.